LISTEN TO MUSIC BY THE CONCERT'S COMPOSERS
Create a free Live Klassisk account to listen
Address
The Reykjavík Chamber Music Society, No. 3
Pétur Björnsson, fiðla
,Guðbjartur Hákonarson, víóla
,Urh Mrak, selló
,Elena Postumi, píanó
Description
Flytjendur: Pétur Björnsson, fiðla Guðbjartur Hákonarson, víóla Urh Mrak, selló Elena Postumi, píanó Á tónleikunum hljóma verk eftir þrjú tónskáld sem eiga það sameiginlegt að hafa fæðst á 19. öld og upplifað gríðarlegar samfélagslegar breytingar á æviskeiði sínu, en allir lifðu þeir fram yfir síðari heimsstyrjöld. Verkin þrjú sem flutt verða á tónleikunum voru öll samin milli 1885 og 1919. Tónleikarnir hefjast á Serenöðu í C-dúr fyrir strengjatríó eftir Erno Dohnanyi, einn merkasta tónlistarmanna Ungverjalands sem naut alþjóðlegrar hylli sem tónskáld, píanóleikari og hljómsveitarstjóri. Serenaðan er kraftmikið og líflegt verk í fimm köflum og má heyra í henni áhrif Brahms og ungverskrar alþýðutónlistar. Næst flytja Guðbjartur Hákonarson og Elena Postumi hina lýrísku Víólusónötu nr. 1 í F-dúr eftir Paul Hindemith, eins áhrifamesta tónskálds fyrri hluta síðustu aldar. Hindemith var upphaflega fiðluleikari en gerðist víóluleikari á þrítugsaldri, um það leyti sem hann samdi víólusónötuna. Líkt og tónskáldið lærði Guðbjartur alla tíð á fiðlu en hlaut fastráðningu við víóludeild Sinfóníuhljómsveitar Íslands árið 2026 og leikur hér víólusónötu opinberlega í fyrsta sinn. Eftir hlé koma allir flytjendur fram í Píanókvartett í c-moll eftir Richard Strauss, sem samdi verkið aðeins tvítugur að aldri og lék sjálfur píanópartinn þegar verkið var frumflutt 1885. Strauss er þekktastur fyrir stór sinfónísk tónaljóð eins og Don Juan, Heldenleben og Alpasinfóníuna enda samdi hann aðeins örfá kammerverk á unga aldri og er þetta í fyrsta sinn sem píanókvartettinn er fluttur á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins. Kammermúsíkklúbburinn er í samstarfi við Sígilda sunnudaga í Hörpu. Tónleikarnir fara fram í Norðurljósum. Sjá nánari upplýsingar og efnisskrá á heimasíðu Kammermúsíkklúbbsins, kammer.is Promoter: Kammermúsíkklúbburinn
Programme:Ernst von Dohnányi: Serenade for String Trio · Paul Hindemith: Viola Sonata No. 1 · Richard Strauss: Piano Quartet
The newsletter about classical music across the Nordics
Get an overview of upcoming concerts, festivals and selected recommendations from across the region.
