Einleikur/dúóSöngurCrossover

Jólatónleikar Bertu og Svans í Hannesarholti

Berta Dröfn Ómarsdóttir, söngur, Svanur Vilbergsson, gítar
Laugardagur 5. desember 2026, 16:00Hannesarholt, Reykjavík

About the concert

Söngkonan Berta Dröfn Ómarsdóttir og gítarleikarinn Svanur Vilbergsson bjóða til notalegrar jólastundar í Hannesarholti laugardaginn 5. desember. Berta er mikið jólabarn og hefur í gegnum árin tekist að draga Svan æ lengra inn í jólastemninguna. Afraksturinn er fjölbreytt og skemmtileg efnisskrá þar sem bæði þekkt og minna þekkt jólalög fá að hljóma. Á tónleikunum verður ferðast milli landa og tungumála og meðal annars flutt ítölsk, spænsk og ensk jólalög, auk kunnuglegra perla á borð við Hvít jól og Once Upon a December. Berta og Svanur hafa starfað saman um árabil og leggja sig fram við að finna lög sem henta vel fyrir rödd og gítar – hvort sem þau koma úr klassíkinni eða þjóðlagaarfinum. Tónleikarnir verða hlýleg jólastund í fallegu umhverfi Hannesarholts.

Programme

Performers

  • Berta Dröfn Ómarsdóttirsöngur
  • Svanur Vilbergssongítar

The venue: Hannesarholt

Einnig í Reykjavík sömu viku

Meira: kórar og söngur

Vinsælast næstu 2 mánuði

Topp 10 áhorfenda

Vinsælustu tónleikarnir á næstunni
Fleiri klassískir tónleikar í Reykjavík

Fréttabréfið

Fáðu það besta frá Live Klassisk í hverjum mánuði

Handvaldir tónleikar, fréttir af hátíðum, hljómsveitum og tónleikastöðum, greinar og gagnrýni, keppnir og afslættir. Ókeypis, og þú getur alltaf afskráð þig.

Þetta færðu

  • Handvaldir tónleikar í hverjum mánuði
  • Fréttir frá hátíðum, tónlistarhópum og tónleikastöðum
  • Greinar og gagnrýni
  • Keppnir, afslættir og annað skemmtilegt