About the concert
Jólatímavélin er ný tónleikaupplifun fyrir börn og fjölskyldur þar sem tónlist liðinna jóla og skemmtilegar sögur fléttast saman. Á tónleikunum fáum við m.a. að heyra klassík, þjóðlagatónlist, gömul dægurlög og ferskar útsetningar af nýrri tónlist. Kvartett Jólatímavélarinnar er skipaður einvalaliði íslenskra söngvara sem öll eru félagar í sönghópunum Kyrju og Yrkju. Þau munu leiða alla fjölskylduna í hljómfagurt tímaferðalag um jól, nú og fyrr. Viðburðurinn er um klukkutíma án hlés.
Fréttabréfið um klassíska tónlist á Íslandi
Fáðu yfirlit yfir væntanlega tónleika, hátíðir og valdar ábendingar alls staðar að af landinu.
