Einleikur/dúóKirkjutónlist

La Nativité du Seigneur / Fæðing Frelsarans e. Olivier Messiaen

Björn Steinar Sólbergsson, orgel
Laugardagur 26. desember 2026, 17:00Hallgrímskirkja, Reykjavík

About the concert

Orgeltónleikar á annan í jólum. Björn Steinar Sólbergsson organisti í Hallgrímskirkju flytur eitt frægasta orgelverk allra tíma, La Nativité du Seigneur eða Fæðing frelsarans, níu hugleiðingar fyrir orgel eftir Olivier Messiaen. La Nativité du Seigneur er án efa þekktasta og mest leikna verk sem Olivier Messiaen samdi fyrir orgel. Eins og nafnið gefur til kynna fjallar það um atburði jólanna og tileinkaði Messiaen verkið sérstaklega Maríu Guðsmóður. Verkið er níu hugleiðingar og í því fáum við að upplifa þekkt minni fagnaðarboðskaps jólanna; María syngur vögguvísu fyrir nýfætt Jesúbarnið, gleðisöngur englanna, fögnuður hirðanna, úlfaldalest vitringanna og lotning vitringanna þegar þeir krjúpa fyrir hinum nýfædda frelsara. En jafnframt eru djúpar guðfræðilegar hugsanir eins og í köflunum Fyrirheit, Orðið, Jesús sættir sig við þjáningu og Börn Guðs. Verkið var samið í Grenoble 1934 og myndar ákveðinn vendipunkt í tónsmíðaferli Messiaens. Program: Messiaen: La Nativité du Seigneur

Programme

HLUSTAÐU Á TÓNLIST EFTIR TÓNSKÁLD TÓNLEIKANNA

Stofnaðu ókeypis aðgang hjá Live Klassisk til að hlusta

Fleiri klassískir tónleikar í Reykjavík

Fréttabréfið um klassíska tónlist á Íslandi

Fáðu yfirlit yfir væntanlega tónleika, hátíðir og valdar ábendingar alls staðar að af landinu.