Einleikur/dúó

Einleikstónleikar – Herdís Ágústa Linnet

Herdís Ágústa Linnet, píanó
Laugardagur 30. janúar 2027, 16:00Hannesarholt, Reykjavík

About the concert

Herdís Ágústa Linnet flytur nokkur af sínum uppáhalds verkum sem skrifuð hafa verið fyrir klassíska píanóið. Verkin endurspegla allt litróf hljóðfærisins, kraftinn og fegurðina í tónlist eftir J. S. Bach og J. Brahms – og sjálfa náttúruna í meistaraverki M. Ravels, Miroirs Þetta eru jafnframt fyrstu formlegu einleikstónleikar Herdísar eftir heimkomu, en á árunum 2019-2025 nam hún við Konunglega tónlistarháskólann í Stokkhólmi og tónlistarháskólann í Malmö. Á námsárunum hlaut hún styrk úr hinum virta minningarsjóði um Birgi Einarsson apótekara og frá Nordiska Jubelfonden þar sem hún er sögð vera píanóleikari sem leikur af mikilli einlægni og með afar fögrum og hlýjum tóni.

Programme

HLUSTAÐU Á TÓNLIST EFTIR TÓNSKÁLD TÓNLEIKANNA

Stofnaðu ókeypis aðgang hjá Live Klassisk til að hlusta

Fleiri klassískir tónleikar í Reykjavík

Fréttabréfið um klassíska tónlist á Íslandi

Fáðu yfirlit yfir væntanlega tónleika, hátíðir og valdar ábendingar alls staðar að af landinu.