Falstaff - Óperan

4. apr

16:00

Harpa

Reykjavík

Ólafur Kjartan Sigurðarson

,

Alexander Joel

4. apr

16:00

Harpa

Reykjavík

Miðar
Miðar

Deila

Deila

HLUSTAÐU Á TÓNLIST EFTIR TÓNSKÁLD TÓNLEIKANNA

Stofnaðu ókeypis aðgang hjá Live Klassisk til að hlusta

Heimilisfang

Austurbakki 2,
101 Reykjavík

Falstaff - Óperan

Ólafur Kjartan Sigurðarson

,

Alexander Joel

Lýsing

Fyrsta stóra uppfærsla hinnar nýju Óperu verður gamanóperan Falstaff eftir Giuseppe Verdi og er það í fyrsta sinn sem þetta meistaraverk er sýnt á Íslandi. Verkið er byggt á persónum úr leikritum eftir William Shakespeare og fjallar um spaugilegar tilraunir aðalsmannsins Falstaffs til að draga tvær efnaðar konur á tálar og hafa síðan fé af eiginmönnum þeirra. Þær sjá fljótt í gegnum blekkingar kauða og taka til sinna ráða. Falstaff er fjörug og leiftrandi ópera um breyskleika og blekkingar, afbrýðisemi og hégómagirnd. „Þá var ég grannur, þá var allt í blóma. Þetta var áður en ég kynntist rjóma.“ Ólafur Kjartan Sigurðarson fer með titilhlutverkið, en hann er einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar og hefur um árabil farið með burðarhlutverk á óperusviðum víða um heim. Í öðrum hlutverkum er fastur hópur söngvara hinnar nýju Óperu ásamt fleiri framúrskarandi söngvurum og kór. Brynhildur Guðjónsdóttir leikstýrir og hljómsveitarstjóri er Alexander Joel. Óperan verður flutt á íslensku í nýrri þýðingu eftir Sólveigu Sigurðardóttur og Þórhall Auð Helgason, en þýðingar þeirra fyrir óperusýningar Óðs hafa vakið mikla athygli. Sýningin er sett upp í Eldborg í Hörpu í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands og mun fullskipuð hljómsveit sjá um hljóðfæraleik. Promoter: Óperan

Fleiri klassískir tónleikar í Reykjavík

Fréttabréfið um klassíska tónlist á Íslandi

Fáðu yfirlit yfir væntanlega tónleika, hátíðir og valdar ábendingar alls staðar að af landinu.