HLUSTAÐU Á TÓNLIST ÚR TÓNLEIKUNUM
Stofnaðu ókeypis aðgang hjá Live Klassisk til að hlusta
Heimilisfang
The Reykjavík Chamber Music Society, No. 6
Strengjakvartettinn Meta4
,Antti Tikkanen, fiðla
,Minna Pensola, fiðla
,Atte Kilpeläinen, víóla
,Tomas Djupsjöbacka, selló
Lýsing
Flytjendur: Strengjakvartettinn Meta4 Antti Tikkanen, fiðla Minna Pensola, fiðla Atte Kilpeläinen, víóla Tomas Djupsjöbacka, selló Það er stórviðburður að einn af eftirsóttustu strengjakvartettum Norðurlandanna, Meta4 kvartettinn frá Finnlandi komi fram á lokatónleikum starfsársins. Er þetta jafnframt fyrsta sinn í 10 ár sem alþjóðlegur kvartett spilar á vegum Kammermúsíkklúbbsins. Meta4 hefur starfað frá árinu 2001 og á fyrsta áratug kvartettsins vann hann til verðlauna í Moskvu og í Vínarborg og var valinn af BBC sem New Generation Artist. Kvartettinn leikur reglulega í fremstu tónleikahúsum heims og hefur gefið út upptökur með strengjakvartettum eftir Haydn, Bartók og Saariaho auk strengjaoktetta eftir Mendelssohn og Enescu ásamt Gringolts kvartettinum. Á efnisskrá er Blueprint eftir hina bandarísku Caroline Shaw (fædd 1982) sem verður spilað í fyrsta sinn á Íslandi. Þetta 7 mínútna verk er bæði innhverft og dramatískt og vitnar í Strengjakvartett op. 18 nr. 6 eftir Beethoven, sem er næsta verkið á efnisskránni. Eftir hlé flytur kvartettinn Voces intimae eftir Jean Sibelius, þjóðartónskáld Finnlands. Íslenskir tónleikagestir þekkja flestir sinfóníurnar og tónaljóðin eftir Sibelius en líkt og Strauss samdi hann aðallega sinfóníska tónlist og tiltölulega lítið af kammermúsík. Sibelius lést árið 1957, sama ár og Kammermúsíkklúbburinn var stofnaður, og því við hæfi að enda 70. starfsár klúbbsins með verki eftir þetta dáða tónskáld. Meðlimir Meta4 eru eftirsóttir listamenn. Sellóleikarinn Tomas Djupsjöbacka er einnig hljómsveitarstjóri, víóluleikarinn Atte Kilpeläinen er leiðari víóludeildar Heilsinkifílharmóníunnar og kennari við Sibeliusakademíuna, og fiðluleikarahjónin Antti Tikkanen og Minna Pensola eru listrænir stjórnendur einnar stærstu tónlistarhátíðar á Norðurlöndunum: Kuhmo kammertónlistarhátíðarinnar þar sem 70 kammertónleikar fara fram á tveimur vikum í friðsælli finnskri náttúru. Kammermúsíkklúbburinn er í samstarfi við Sígilda sunnudaga í Hörpu. Tónleikarnir fara fram í Norðurljósum. Sjá nánari upplýsingar og efnisskrá á heimasíðu Kammermúsíkklúbbsins, kammer.is Promoter: Kammermúsíkklúbburinn
Dagskrá:Caroline Shaw: Blueprint · Ludwig van Beethoven: String Quartet No. 6 · Jean Sibelius: String Quartet, Voces intimae
Fréttabréfið um klassíska tónlist á Íslandi
Fáðu yfirlit yfir væntanlega tónleika, hátíðir og valdar ábendingar alls staðar að af landinu.
