HLUSTAÐU Á TÓNLIST EFTIR TÓNSKÁLD TÓNLEIKANNA
Stofnaðu ókeypis aðgang hjá Live Klassisk til að hlusta
Heimilisfang
KMK70, NR. 4: Kammermúsíkklúbburinn sjötugur
Ari Þór Vilhjálmsson, fiðla
,Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla
,Sigurgeir Agnarsson, selló
,Xun Yang, bassi
,Domenico Codispoti, píanó
Lýsing
Flytjendur: Ari Þór Vilhjálmsson, fiðla Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla Sigurgeir Agnarsson, selló Xun Yang, bassi Domenico Codispoti, píanó Kammermúsíkklúbburinn fagnar nú sjötíu ára afmæli en fyrstu tónleikar klúbbsins fóru fram í Melaskóla þann 7. febrúar 1957. Þá hlýddu á annað hundrað tónleikagestir á Erkihertogatríóið eftir Beethoven í flutningi Björns Ólafssonar, konsertmeistara Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Einars Vigfússonar, leiðara sellódeildar SÍ og Árna Kristjánssonar píanóleikara. Eftir hlé bættust við Jón Sen á víólu og Erwin Köppen á bassa og flutti hópurinn Silungakvintettinn eftir Schubert. Líklega óraði fáa tónleikagesti fyrir því að klúbburinn ætti eftir að verða helsti vettvangur landsins fyrir flutning kammertónlistar og að starfseminni yrði haldið áfram óslitið næstu sjö áratugina. Efnisskrá þessara fyrstu tónleika verður endurtekin á afmælisdaginn 7. febrúar 2027 af fríðum hópi flytjenda: Þórunn Ósk Marinósdóttir, Sigurgeir Agnarsson og Xun Yang eru leiðarar í víólu-, selló- og bassadeild Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Með þeim leikur ítalski píanóleikarinn Domenico Codispoti sem er íslenskum tónleikagestum að góðu kunnur og Ari Þór Vilhjálmsson, listrænn stjórnandi Kammermúsíkklúbbsins. Kammermúsíkklúbburinn er í samstarfi við Sígilda sunnudaga í Hörpu. Tónleikarnir fara fram í Norðurljósum. Sjá nánari upplýsingar og efnisskrá á heimasíðu Kammermúsíkklúbbsins, kammer.is Promoter: Kammermúsíkklúbburinn
Fréttabréfið um klassíska tónlist á Íslandi
Fáðu yfirlit yfir væntanlega tónleika, hátíðir og valdar ábendingar alls staðar að af landinu.
