About the concert
Pínulitli tónsprotinn er sniðinn að allra yngstu áheyrendum Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Tónleikarnir eru um hálftímalangir og haldnir í Flóa, opnu og fallegu umhverfi í Hörpu. Hljómsveitin leikur fallega tónlist og skemmtileg lög sem margir þekkja. Kynnir er enginn annar en Bolli Könnuson Le Stell og Maxímús Músíkús kíkir að sjálfsögðu í heimsókn. Áhersla er lögð á létt og vinalegt andrúmsloft og nánd barnanna við hljómsveitina. Gott er að koma með púða fyrir þau minnstu til að sitja á. Aðgangur er ókeypis, hægt verður að bóka miða þegar nær dregur tónleikum.
Performers
Sinfóníuhljómsveit Íslands
- Stjórnandi: Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir
- Kynnir: Níels Thibaud Girerd
- Kynnir: Bolli Könnuson Le Stell
Fleiri tónleikar með Sinfóníuhljómsveit Íslands
Meira: sinfóníutónleikar
Vinsælast næstu 2 mánuðiFréttabréfið
Fáðu það besta frá Live Klassisk í hverjum mánuði
Handvaldir tónleikar, fréttir af hátíðum, hljómsveitum og tónleikastöðum, greinar og gagnrýni, keppnir og afslættir. Ókeypis, og þú getur alltaf afskráð þig.
Þetta færðu
- Handvaldir tónleikar í hverjum mánuði
- Fréttir frá hátíðum, tónlistarhópum og tónleikastöðum
- Greinar og gagnrýni
- Keppnir, afslættir og annað skemmtilegt
